Nemi með meiru Ragnheiður Diljá: Stutt í bili

miðvikudagur, ágúst 23, 2006

Stutt í bili

Jææææja!

Nú eru liðnir nokkrir dagar síðan ég kom heim og ég hef ekki enn þá bloggað seinasta bloggið sem ég lofaði ykkur. Þetta er ekki það seinasta því ég er að fara að sofa, klukkan er orðin ansi margt. Ég ákvað í kvöld að setja inn myndir á myndasíðuna en byrjaði frekar seint á því og lenti í aðeins of oft í veseni (kannski af því að ég byrjaði svona seint á þessu öllu saman - þreytumistök!). En fyrst ég byrjaði á því þá varð ég nú að gera það svolítið almennilega en ég er ekki alveg búin að setja inn allar þær myndir sem mig langar að sýna ykkur...restin kemur seinna með lokablogginu - svanasöngnum - ...hmmm...ætla að fara að sofa núna áður en ég byrja að bulla!

Ps: þið þurfið ekkert að vera að kommenta hér, geymið það bara þangað til næst. Ég ætla að segja ykkur það núna, ég hef sagt það áður og segi ykkur það aftur næst, að ég er mjög ánægð með hversu dugleg þið hafið verið að kommenta hjá mér - þó ég hafi kannski ekki verið svakalega dugleg að blogga :)

1 Comments:

At 23/8/06 17:11, Anonymous Nafnlaus said...

Hallo gullið mitt! Takk fyrir siðast i simanum i morgun. Myndirnar eru alveg frabærar að vanda. Vonandi hefurðu att goðan utivistarda með Stephanie usw. Heyrumst fljotlega. I love you þin mamma. Ps. Philip a nafnadag i da 23,agust og biður að heilsa. 1.000 bussi.

 

Skrifa ummæli

<< Home